Íslandsbankamót 4. fl. karla og kvenna 10.-12. september 2010

Dagana 10. – 12. september 2010 heldur knattspyrnudeild Þórs árlegt knattspyrnumót fyrir
4. flokk karla og kvenna. Mótið er eingöngu fyrir þennan aldurshóp og dagskrá mótsins
unnin með þennan aldur í huga, sannkallað fótboltapartí!

Mótið er haldið í samvinnu við og með stuðningi Íslandsbanka. Spilaður verður 11 manna bolti í A og B- liðum. Allir leikir fara fram á svæði Þórs. Leiktími verður 2 x 25 mínútur.

Áætlað er að mótið hefjist uppúr hádegi föstudaginn 10. september og ljúki sunnudaginn
12. september. 


Að venju verður mótsgjald með því lægsta sem þekkist á svona mótum kr. 8.000 á hvern keppanda. Fararstjórar og þjálfarar greiða aðeins helminginn af því gjaldi.

Innifalið í mótsgjaldinu er keppnisgjald, gisting, morgunmatur laugardag og sunnudag, pizzuveisla föstudag, hádegissnarl á laugardegi, kvöldmatur á laugardegi og pylsur á sunnudegi. Sund föstudag, laugardag og sunnudag og diskótek í Síðuskóla á föstudeginum.


Markmið með þessu móti er að lengja keppnistímabilið hjá 4. fl. karla og kvenna, spila fótbolta og hafa gaman af lífinu! Skemmtilegur endir á sumrinu.

Skráning og upplýsingar  í síma 8666812 Jónsi eða 8638407 Palli Gísla

Knattspyrnudeild Þórs   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Íslandsbankamót Þórs
Íslandsbankamót Þórs
Íslandsbankamót Þórs er knattspyrnumót fyrir 4. flokk karla og kvenna og er haldið í september ár hvert.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband