Leikjaplan og riðlar tilbúin

Sæl öll sömul,

Þá eru drög að riðlum og leikjaplani tilbúin. Ef engar athugasemdir berast þá er þetta endanleg niðurröðun. Tvö lið drógu sig út úr karlamótinu á síðustu stundu þegar ég var búinn að raða mótinu en með snarræði þá tókst að bjarga málum þar og mótið lítur eins og ég hef áður sagt hér mjög vel út.

Nú treystum við hins vegar algjörlega á að engin hellist úr lestinni úr þessu!

Vakin er athygli á því að ekki er spilað með a- og b-liða fyrirkomulagi heldur er spilað fyrst með hraðmótsfyrirkomulagi og svo er skipt í úrslitariðla. Með því fyrirkomulagi fá liðin fleiri andstæðinga, mótið verður fjölbreyttara og leikirnir jafnari þegar komið er í úrslitariðlana þar sem leiktíminn er lengri.

Eins og þið sjáið á leikjaniðurröðuninni er miðað við að unglingarnir okkar þurfi aðeins meiri svefn en gengur og gerist á svona mótum og því byrjað seinna á morgnanna að spila :)

Dagskráin fyrir mótið sjálft er ekki alveg klár en ljóst er að pizzuveilsan er á föstudagskvöldi og ballið laugardagskvöldinu.

Þið smellið á skrárnar sem fylgja þessari færslu til að sjá riðlana og leikjaplan. 

Hlökkum til að sjá ykkur öll, vonandi verður veðrið eins frábært og það hefur verið hér undanfarna daga á Akureyri!


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Íslandsbankamót Þórs
Íslandsbankamót Þórs
Íslandsbankamót Þórs er knattspyrnumót fyrir 4. flokk karla og kvenna og er haldið í september ár hvert.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband