Flott fótboltaveður á Akureyri

Íslandsbankamótið fer vel af stað í blíðskaparveðri eins og oft er í Þorpinu. Nú síðdegis gerði dálitla hitaskúr en klukkan 18 var 19 stiga hiti og hægviðri. Gerist varla betra til að spila fótbolta. Spáin er svipuð á morgun, örlítið kaldara en blíðviðri. Á sunnudag gætu komið skúrir en það verður þá bara til að gera leikina skemmtilegri.

Fyrsta mótsdegi lýkur með pizzuveislu fyrir keppendur, fararstjóra og þjálfara kl. 19.30 í Hamri, félagsheimili Þórsara. 

Kl. 21 verður fundur með fararstjórum og þjálfurum í Hamri.

Sundlaugin í Glerárskóla er opin keppendum til kl. 21.00 í kvöld, föstudagskvöld. Þau mistök urðu við prentun handbókar að þar stendur að á morgun verði laugin opin til 20.00 en hið rétta er að sundlaugin verður opin 9.00-18.00 á laugardag. Við biðjumst velvirðingar á þessum mistökum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Íslandsbankamót Þórs
Íslandsbankamót Þórs
Íslandsbankamót Þórs er knattspyrnumót fyrir 4. flokk karla og kvenna og er haldið í september ár hvert.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband