Færsluflokkur: Bloggar

Íslandsbankamótinu aflýst þetta haustið

Því miður reyndist þátttaka í Íslandsbankamótinu það dræm þetta árið að mótsstjórn hefur ákveðið að slá það af að sinni. Sem sagt, ekkert Íslandsbankamót núna í haust.

Okkur þykir leitt að svona skyldi fara í þetta skiptið.

Nú leggjast menn undir feld og vonandi munum við bjóða upp á eitthvað spennandi á næsta ári, hvort sem það verður á hefðbundnum tíma eða ekki. Fylgist því með!

Mótsstjóri.


Íslandsbankamót 4. fl. karla og kvenna 26.-28. ágúst 2011

Dagana 26. – 28. ágúst 2011 heldur knattspyrnudeild Þórs árlegt knattspyrnumót fyrir
4. flokk karla og kvenna. Mótið er haldið í samvinnu við og með stuðningi Íslandsbanka.  

Mótið er eingöngu fyrir þennan aldurshóp og dagskrá mótsins unnin með þennan aldur í huga, sannkallað fótboltapartí!

Spilaður verður 11 manna bolti í A og B- liðum. Allir leikir fara fram á svæði Þórs og er leiktími 2 x 20 mínútur.

Áætlað er að mótið hefjist uppúr hádegi föstudaginn 26. ágúst og ljúki sunnudaginn
28. ágúst.


Að venju verður mótsgjald með því lægsta sem þekkist á svona mótum kr. 8.500 á hvern keppanda. Fararstjórar og þjálfarar greiða aðeins helminginn af því gjaldi.


Innifalið í mótsgjaldinu er keppnisgjald, gisting, morgunmatur laugardag og sunnudag, pizzuveisla föstudag, hádegissnarl á laugardegi, kvöldmatur á laugardegi og pylsur á sunnudegi. Sund föstudag, laugardag og sunnudag og diskótek á föstudeginum. Gisting er í Glerárskóla sem staðsettur er við hlið Þórssvæðisins.


Markmið með þessu móti er að lengja keppnistímabilið hjá 4. fl. karla og kvenna, búa til góðan endapunkt á sumrinu fyrir þau lið sem ekki komast í úrslitakeppni eða vera flott hópefli fyrir komandi úrslitakeppnir fyrir þau lið sem þangað komast, spila fótbolta og hafa gaman af lífinu!

Heimasíða mótsins er http://islandsbankamot-thors.blog.is

Skráning og nánari upplýsingar í síma 8666812 Jónsi eða á netfangið godamot@tpostur.is

 


Íslandsbankamótinu lokið

Þá er Íslandsbankamótinu árið 2010 lokið. Sannarlega má segja að mótið hafi heppnast vel og virkilega góður andi hafi ríkt á svæðinu. ,,Það var allt svo afslappað og þægilegt," komst einn þjálfari að orði og það eru eflaust orðin sem lýsa mótinu best.

KA-menn stóðu uppi sem siguvegarar í A-riðli 4.flokks karla. Þórsstelpur sigruðu A-riðil 4.flokks kvenna. Valur 2 sigraði B-riðil karla og KA vann B-riðill kvenna. Loks unnu Grindvíkingar C-riðil 4.flokks karla.

Krakkarnir stóðu sig virkilega vel á mótinu og er óhætt að segja að þetta hafi verið góður endir á sumrinu hjá þeim tæpu 300 þátttakendum sem kepptu á mótinu.

Sjáumst aftur að ári liðnu!

kveðja, mótsstjórn!


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Leiðrétting á úrslitum

Ein úrslit er rangt skráð í úrslitakerfinu hér fyrir neðan. KA4 hafði þar sigur á Þór2 5-0 í leik sem fór fram kl.15:00. Þetta verður leiðrétt í úrslitakerfinu í fyrramálið.

kveðja, mótsstjóri.


"Nú verð ég að fara að horfa á."

Fyrir einn leik dagsins ku formaður knattspyrnudeildar Þórs hafa sagt eitthvað á þessa leið: "Nú verð ég að fara að horfa á, ég á þrjá í þessum leik." Unnsteinn formaður átti þá þrjá menn á vellinum, Sindri og Rúnar synir Unnsteins spiluðu með sama liðinu hjá Þór og Tryggvi, elsti sonurinn, dæmdi leikinn.

Úrslit laugardagsins

Jæja þá er leikjum lokið á laugardegi og við tekur skemmtun langt fram á kvöld á balli í Síðuskóla. Krakkarnir hafa verið til algjörrar fyrirmyndar á mótinu og hér ríkir virkilega góður og afslappaður andi meðal allra.

Nú látum við okkur bara hlakka til morgundagsins en þá spila öll liðin einn leik og halda svo heim á leið eftir góða grillveislu.


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Myndir frá Palla Jóh

Þórsarinn Palli Jóh, hirðljósmyndari og vefstjóri Þórsara, tók nokkrar myndir í morgun og setti í albúm á þórsvefnum - smellið hér til að opna albúmið. Mótsstjórn þakkar Palla.

Ljóst hvernig liðin raðast í úrslitariðla

Þá er orðið ljóst hvernig liðin raðast í úrslitariðla. Nú lengist leiktíminn í 2 x 20 mín enda um jafningjaleiki að ræða þegar komið er á þetta stig mótsins.

 


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Leikjum lokið á föstudegi

Jæja þá er leikjum föstudagsins lokið og óhætt að segja að svo sannarlega hafi verið mikil gleði og mikið fjör hérna á Þórsvellinum. Liðunum gekk auðvitað misvel eins og gengur og gerist en hér að neðan má sjá úrslit dagsins og stöðu í riðlunum.

Athygli er vakin á því að verði lið jöfn að stigum, verður það lið ofar sem vann innbyrðisviðureign en ef viðkomandi lið gerðu jafntefli gildir sú regla að það lið sem hefur fengið færri mörk á sig fer áfram. Sé staðan enn jöfn þar er varpað hlutkesti.

 


Skrár tengdar þessari bloggfærslu:

Feðgar dæma

Dómaramálin eru alltaf í brennidepli á öllum fótboltamótum og stundum er deilt við dómarann. Leikmenn úr meistaraflokki, 2. og 3. flokki karla dæma á mótinu og er notast við svokallað tveggja dómara kerfi. Þá eru tveir dómarar inni á vellinum en engir eiginlegir línuverðir eða aðstoðardómarar.

Á morgun vill síðan svo skemmtilega til að feðgar munu dæma saman leik en það eru þeir Jón Einar Jóhannsson, öryggisstjóri á heimaleikjum Þórs, og sonur hans, Birkir Örn. Fróðlegt verður að sjá hvernig valdahlutföllinn verða á milli dómaranna í þeim leik.


Næsta síða »

Höfundur

Íslandsbankamót Þórs
Íslandsbankamót Þórs
Íslandsbankamót Þórs er knattspyrnumót fyrir 4. flokk karla og kvenna og er haldið í september ár hvert.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband