15.3.2011 | 10:35
Íslandsbankamót 4. fl. karla og kvenna 26.-28. ágúst 2011
Dagana 26. 28. ágúst 2011 heldur knattspyrnudeild Þórs árlegt knattspyrnumót fyrir
4. flokk karla og kvenna. Mótið er haldið í samvinnu við og með stuðningi Íslandsbanka.
Mótið er eingöngu fyrir þennan aldurshóp og dagskrá mótsins unnin með þennan aldur í huga, sannkallað fótboltapartí!
Spilaður verður 11 manna bolti í A og B- liðum. Allir leikir fara fram á svæði Þórs og er leiktími 2 x 20 mínútur.
Áætlað er að mótið hefjist uppúr hádegi föstudaginn 26. ágúst og ljúki sunnudaginn
28. ágúst.
Að venju verður mótsgjald með því lægsta sem þekkist á svona mótum kr. 8.500 á hvern keppanda. Fararstjórar og þjálfarar greiða aðeins helminginn af því gjaldi.
Innifalið í mótsgjaldinu er keppnisgjald, gisting, morgunmatur laugardag og sunnudag, pizzuveisla föstudag, hádegissnarl á laugardegi, kvöldmatur á laugardegi og pylsur á sunnudegi. Sund föstudag, laugardag og sunnudag og diskótek á föstudeginum. Gisting er í Glerárskóla sem staðsettur er við hlið Þórssvæðisins.
Markmið með þessu móti er að lengja keppnistímabilið hjá 4. fl. karla og kvenna, búa til góðan endapunkt á sumrinu fyrir þau lið sem ekki komast í úrslitakeppni eða vera flott hópefli fyrir komandi úrslitakeppnir fyrir þau lið sem þangað komast, spila fótbolta og hafa gaman af lífinu!
Heimasíða mótsins er http://islandsbankamot-thors.blog.is
Skráning og nánari upplýsingar í síma 8666812 Jónsi eða á netfangið godamot@tpostur.is
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Af mbl.is
Íþróttir
- Gísli Þorgeir: Veit ekki hvað ég á að segja
- Mun fylla í skarð næsta leikmanns Liverpool?
- Liverpool vill 60 milljónir
- Skotmark United og Tottenham tjáir sig
- Þrír lykilleikmenn framlengja
- Jón Þór hættur hjá ÍA
- Vill kæfa Manchester United
- Félagaskiptin í enska fótboltanum
- Hamilton miður sín eftir að keyra á dýr
- Eftirmaður Óskars tekur við Íslendingaliðinu
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.